Sony Ericsson W100i Inflatable Bouncy Toy User Manual


 
mælt er með í alþjóðlegum viðmiðunarreglum. Þessar
viðmiðunarreglur voru þróaðar af ICNIRP, sjálfstæðri
vísindastofnun, og þar er að finna öryggisatriði sem ætlað er að
vernda alla, án tillits til aldurs eða heilsufars.
Þessi sími hefur verið prófaður með tilliti til snertingar við
líkamann. Hann uppfyllir viðmiðunarreglur um útvarpsbylgjur þegar
hann er notaður með aukahlut sem inniheldur engan málm og
síminn er staðsettur að lágmarki 15 mm frá líkamanum. Notkun
annarra aukahluta uppfyllir hugsanlega ekki viðmiðunarreglur um
útvarpsbylgjur.
Þessar viðmiðunarreglur notast við mælieininguna SAR (specific
absorption rate). Hámark SAR fyrir farsíma er 2 W/kg og hæsta
SAR gildið fyrir þetta tæki þegar það var prófað upp við eyra
reyndist vera 1,03 W/kg (10g)*. Þar sem farsímar bjóða upp á fjölda
notkunarmöguleika er einnig hægt að nota þá í öðrum stellingum,
t.d. láta þá liggja upp við líkamann. Í þeim tilvikum sem síminn er
borinn upp við líkamann er hæsta SAR gildið sem mældist við
prófun 1,24 W/kg (10g)*.
SAR gildið er mælt á hæsta sendistigi tækisins. Raunverulegt
SAR gildi þessa tækis meðan á notkun stendur er að jafnaði undir
því sem gefið er upp hér að ofan. Þetta er sökum sjálfvirkra
breytinga á orkustigi tækisins sem tryggja að það noti einungis
lágmarksstyrk til að tengjast við símkerfið.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur gefið út þá
yfirlýsingu að samkvæmt tiltækum vísindaupplýsingum þá bendi
ekkert til þess að þörf sé á sérstökum varúðarráðstöfunum við
notkun farsímatækja. Stofnunin ráðleggur þeim sem vilja draga úr
mögulegum áhrifum útvarpsbylgna að takmarka lengd símatala
eða nota handfrjálsan búnað til að halda farsímanum frá höfði og
líkama.
Frekari upplýsingar er hægt að finna á vefsvæði
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (http://www.who.int/emf)
eða á Vodafone (http://www.vodafone.com).
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
*Prófanir eru framkvæmdar í samræmi við alþjóðlegar
viðmiðunarreglur.
14
This is an Internet version of this publication. © Print only for private use.